Um okkur
Áratuga reynsla - Fagmennska - Heiðarleiki
Við erum Haffi og Dóri, tveir góðir félagar sem stofnuðu Parketmessuna
af ástríðu fyrir fallegum gólfum og vönduðu handverki.
Með áratuga reynslu í parketlögn, parketslípun og viðhaldi gólfefna leggjum við metnað í að skila faglegri vinnu sem endist.
Fyrir okkur skiptir ekki aðeins máli að gólfið líti vel út, heldur að viðskiptavinurinn sé ánægður með allt ferlið – frá fyrstu samskiptum þar til verkinu er lokið.
Við trúum á heiðarleika og góð samskipti.
Engin verkefni eru of stór eða of lítil og við tökum að okkur verkefni um land allt.
Ef þú ert að leita að fagmönnum sem leggja metnað í hvert smáatriði, þá hlökkum við til að hjálpa þér að skapa gólf sem þú getur verið stolt(ur) af.
Hægt er að senda okkur fyrirspurnir á parketmessan@gmail.com eða hringja beint í okkur og ræða málin.
Haffi : 8977727
Dóri : 6923781
Hlökkum til að heyra frá þér

